Ágrip af sögu Meistarafélags Bólstrara.

Frá 70 ára afmæli Einars Waage, bólstrara, 1960.
Það mun hafa verið um 1906 að bólstrun barst til Íslands. Danskur bólstrari, Axel Meinholt, kom til Íslands og útskrifaði hann fyrsta nemann, ( án námssamnings ) Kristinn Sveinsson. Um 1922 flutti Axel aftur til Danmerkur.
Kristinn tók sinn fyrsta nema, Ólaf Daðason og gerði námssamning við hann 1. október 1928. Þar með varð bólstrun löggilt iðngrein og er Ólafur fyrsti neminn sem útskrifast í iðngreininni. Ólafur fæddist á Narfeyri á Skógarströnd 7. mai 1906, d. 25.október 2001. Hann er einn af heiðursfélögum félagsins. Aðrir eru Ásgrímur P. Lúðvíksson, fæddur 2.nóvember 1916, d. 6.ágúst 1998, Karl Jónsson fæddur 15.september 1919, d. 17.desember 1998 og Ragnar Björnsson fæddur 30.ágúst 1916, d.1.april 2004.
Meistarafélagið bauð öllum félögum og mökum í skemmti- og fræðsluferð til Spánar í október. 2006 í tilefni af því að 100 ár voru frá þvi að bólstrun hófst á Íslandi.
Félagið var stofnað þann 20. apríl 1928 á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis og er þar af leiðandi elsta félag atvinnurekenda á Íslandi. Kristinn Sveinsson var fyrsti formaður félagsins, en verkstæði hans var í kjallara hússins.

Frá verkstæði Erlings Jónssonar í Reykjavík, einu af fyrstu bólsturverkstæðum á Íslandi. Í þá daga tíðkaðist að bólstrarar voru klæddir í hvíta sloppa, lakkskó og með hálsbindi við vinnu sína.

Teikningar eftir Jón Helgason bólstrara frá því um1930 sýna glögglega, að hann var bæði mikill listamaður og góður fagmaður.
Formenn félagsins frá upphafi :
1928 - 1935: Kristinn Sveinsson
1935 - 1936: Ragnar S. Ólafsson
1936 - 1945: Kristinn Sveinsson
1945 - 1952: Erlingur Jónsson
1952 - 1976: Ásgrímur P. Lúðviksson
1976 - 1982: Leifur Jónsson
1982 - 1987: Hafsteinn Gunnarsson
1987 - 1996: Loftur Þór Pétursson
1996 - 2009 HafsteinnSigurbjarnarson
2009 -- Loftur Þór Pétursson