Markmið

Merkið tryggir fagleg vinnubrögð


Tilgangur félagsins er að benda almenningi, fyrirtækjum og stofnunum á að bólstrun er löggilt iðngrein og að í Meistarafélagi bólstrara eru einungis meistarar sem eru með sjálfstæðan rekstur og eru þar af leiðandi allir með töluverða reynslu í faginu.

Félagið stendur vörð um sameiginlega hagsmuni félagsmanna. Það heldur endurmenntunarnámskeið fyrir félagsmenn og miðlar upplýsingum til þeirra um nýjungar í greininni.

Félagið heldur sýningar þar sem almenningi er gefinn kostur á að kynnast því hvernig húsgögn verða til og þeim er veitt fagleg ráðgjöf.

Félagið gætir einnig hagsmuna viðskiptavina félagsmanna. Ef aðili er ósáttur við vinnubrögð félaga í MFB er hann hvattur til að koma athugasemdum sínum á framfæri við stjórn félagsins.

Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins og nýtur þar aðstoðar á ýmsan hátt. Ritari og fulltrúi MFB hjá samtökunum er Árni Jóhannsson.





Senda póst

Velkomin á vef Meistarafélags bólstrara